{"product_id":"margret-lara-astrida-fyrir-leiknum","title":"Margrét Lára - Ástríða fyrir leiknum","description":"\u003ch4 class=\"hdln--smallest\"\u003eHöfundar: \u003cspan style=\"text-decoration: underline;\"\u003eBjarni Helgason og Margrét Lára Viðarsdóttir\u003c\/span\u003e\n\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003eMargrét Lára Viðarsdóttir er meðal fremstu íþróttamanna sem Ísland hefur alið. Hún er markahæsti landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu frá upphafi en hún lék sinn fyrsta A-landsleik 16 ára gömul og sinn fyrsta meistaraflokksleik með ÍBV þegar hún var einungis 14 ára. Margrét Lára hélt í atvinnumennsku þar sem hún spilaði í sterkustu deildunum og með einu besta félagsliði heims. Á ferli sínum varð hún landsmeistari í þremur löndum, var kjörin íþróttamaður ársins, spilaði á stórmótum með landsliðinu, varð þrívegis markahæst í Meistaradeildinni og fjórum sinnum útnefnd knattspyrnukona ársins. Margrét Lára skoraði með sinni fyrstu og síðustu snertingu í leik með íslenska landsliðinu og ruddi brautina fyrir ungar knattspyrnukonur, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ bókinni segir Margrét Lára sögu sína og deilir reynslu sinni og góðum ráðum. Hún gerir ferilinn upp og segir á einlægan hátt frá sigrunum og mótlætinu, samherjum og mótherjum, lífinu eftir fótboltann og síðast en ekki síst ástríðunni fyrir leiknum.\u003c\/p\u003e","brand":"Boltamaðurinn","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45673247998110,"sku":"MLV9","price":7990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/3770\/8190\/files\/unnamed.jpg?v=1751457995","url":"https:\/\/boltamadurinn.is\/is\/products\/margret-lara-astrida-fyrir-leiknum","provider":"Boltamaðurinn","version":"1.0","type":"link"}